,,Human Design tengist ekki trúarbrögðum; kerfið gerir enga kröfu um að þú trúir á eitt né neitt. Þetta snýst hvorki um sagnfræði né heimspeki, heldur er um að ræða raunverulegt kort af tilverunni og kortlagningu á þínum eigin erfðalykli. Hæfnin til að lýsa mannlegu eðli með svo mikilli nákvæmni er ómetanleg, því hún dregur okkar sanna sjálf fram í dagsljósið. Human Design opnar dyrnar að sjálfsást, ást á lífinu og ást á náunganum í gegnum dýpri skilning.” -Ra Uru Hu
Human Design er ekki hugsað sem kerfi sem fólk á að trúa á og fylgja í blindni, heldur sem hagnýtur vegvísir að eigin sjálfsþekkingu. Í stað þess að meðtaka upplýsingarnar sem algildan sannleika, er fólk hvatt til að gerast „vísindamenn í eigin lífi." Þetta er kallað tilraunin (e. The Experiment) og hún snýst um að prófa sína stefnu (e. Strategy) og innra vald (e. Authority) í daglegum ákvörðunum og fylgjast með því hvaða áhrif það hefur á lífsgæði og vellíðan (Bunnell & Hu, 2011, bls. 18).
Með því að hætta að treysta á rökréttar skýringar hugans og byrja að treysta líkamanum, fer ferlið úr því að vera bara áhugaverð pæling yfir í að verða lifandi reynsla. Þessi nálgun gerir það að verkum að hver og einn sannreynir kerfið á eigin forsendum. Markmiðið er ekki að verða „sérfræðingur“ í Human Design, heldur að verða sérfræðingur í sjálfum sér og lifa lífinu af meira æðruleysi og minni mótstöðu (Bunnell & Hu, 2011, bls. 20).
Innra vald (e. Authority) er eitt mikilvægasta hugtakið í Human Design. Það vísar til þess staðar í líkamanum sem er hannaður til að taka ákvarðanir fyrir þig. Stóra málið hér er að hugurinn er aldrei þitt innra vald. Hugurinn er frábært tæki til að safna upplýsingum, greina valmöguleika og miðla hugmyndum til annarra, en hann er ekki hannaður til að stýra lífi þínu (Bunnell & Hu, 2011, bls. 22).
Í okkar samfélagi er okkur kennt að nota rökfræðina til að taka ákvarðanir. Við búum til lista yfir kosti og galla og reynum að „hugsa okkur“ að niðurstöðu. Vandamálið er að hugurinn getur rökstutt hvað sem er og hann skiptir oft um skoðun eftir því hvaða upplýsingar hann fær.
Innra valdið er aftur á móti sannleikur líkamans. Það er stöðugt og áreiðanlegt ferli sem hjálpar þér að vita hvenær eitthvað er raunverulega rétt fyrir þig, óháð því hvað rökfræðin segir (Bunnell & Hu, 2011, bls. 23).
Þegar þú byrjar að fylgja þínu innra valdi í stað þess að hlýða skipunum hugans, byrjar þú að finna fyrir minni mótstöðu í lífinu. Þetta er kjarninn í tilrauninni sem við ræddum áðan. Með því að gefa líkamanum stjórnina og láta hugann gerast farþega, muntu upplifa að ákvarðanir verða auðveldari og niðurstöðurnar meira í samræmi við það hver þú ert (Bunnell & Hu, 2011, bls. 25).