Námskeið 1 - Saumavélin og grunnþekking

Námskeið 1 - Saumavélin og grunnþekking

14. Nóvember kl. 12-16
12,000 kr
Skip to product information
Námskeið 1 - Saumavélin og grunnþekking

Námskeið 1 - Saumavélin og grunnþekking

12,000 kr
Taxes included.
Dagsetning

Þetta námskeið verður haldið í Hveragerði og er fyrsta þrep í námskeiðsþrepunum. 

Á námskeiðinu saumum við svuntu frá grunni og förum saman í gegnum allt ferlið.

Á námskeiðinu lærir þú meðal annars að:

  • á þína eigin saumavél, að þræða hana, spóla undirtvinna, skipta um saumspor, stilla þráðaspennu, sporlengd og þrýsting saumfótar.

  • taka upp snið

  • vinna með bryddingar, skábönd og falda 

  • vinna með mismunandi saumspor 

  • pressa sauma og gera einfaldan og tvöfaldan fald

  • sauma vasa ofan á efni

Allt efni í svuntuna er innifalið og öll verkfæri á borð við skæri, sníðapappír, títuprjóna og sprettunálar eru á staðnum.

Eina sem þú þarft að taka með er saumavélin þín. Ég legg áherslu á að nemendur vinni á eigin vél svo þau kynnist henni betur og verði öruggari í að nota hana heima.

Ef þú átt ekki saumavél en langar að koma máttu hafa samband á gestny@gmail.com og við finnum út úr því.

Boðið er upp á kaffi og léttar veitingar.

Aðeins 5 pláss í boði á hvert námskeið

Nánar

Allar vörur eru handgerðar úr vönduðum efnum þar sem gæði og ending eru í fyrirrúmi. Hönnunin miðast við að varan sé bæði falleg og nýtist vel í þínu daglega lífi.

Sending og skil

Ég legg mikið upp úr því að afgreiða og senda pantanir fljótt og örugglega svo þú fáir vöruna þína sem allra fyrst í hendurnar.

Það skiptir mig öllu máli að þú sért ánægð eða ánægður með viðskiptin. Ef varan hentar ekki eða þú vilt skila henni af einhverjum ástæðum, endilega heyrðu í mér og við finnum í sameiningu góða lausn á því.

Skoðaðu fleiri vörur

Alvöru saumaklúbbur

Hárband

Hárband

3,000 kr
  • Hundaólar

    Hundaólar

    5,000 kr

    Námskeið 1 - Saumavélin og grunnþekking