Ég heiti Gestný og hef saumað og hannað fatnað og annað glingur síðan 2007. Ég er bæði kennari og afbrotafræðingur en hef þó mestan áhuga á alls kyns sköpun og hönnun.

Mín nálgun á hönnun er töluvert frjáls og persónuleg. Þegar ég hanna og sauma styðst ég sjaldnast við hefðbundin eða tilbúin snið, heldur sé ég hlutina fyrir mér í þrívídd og vinn mig áfram frá grunni út frá þeirri sýn. Til að tryggja hámarksgæði og endingu í handverkinu nota ég Juki-iðnaðarsaumavél, enda skiptir vandaður frágangur mig gríðarlega miklu máli.

Ég bý og starfa í Hveragerði og vinnustofan mín tekur mið af því sem veitir mér innblástur og hugarró í dagsins önn. Þegar ég er ekki að hanna og sauma er ég gjarnan úti í garðunum mínum sem ég hef hannað frá grunni, þar sinni ég plöntunum og smíða. Ég hef notað sömu tækni í smíðunum og ég nota í saumaskapnum, þ.e.a.s. að sjá fyrir mér hluti og bara gera þá. Mín leið er nefnilega alltaf sú að ég læri mest á því að gera mistökin og prófa mig áfram.

Önnur áhugamál mín sem tengjast sköpun eru skáldskapur, en ég skrifa mikið af ljóðum, finnst gott að grípa í gítarinn minn stöku sinnum, fara út að labba með hundana og í góðu veðri elska ég að línuskauta. Þetta umhverfi rennur allt saman við sköpunarferlið mitt og á sinn þátt í að móta þá hönnun sem þú finnur hér í vefversluninni.