Lestrargluggi og bókamerki
Lestrarglugginn er verkfæri hannað til að styðja við lestur. Hann virkar þannig að hann afmarkar textann sem verið er að lesa hverju sinni, sem auðveldar lesandanum að fara ekki línuvillt og einbeita sér. Sérstaklega gagnlegt fyrir börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í lestri.
Nánar
Allar vörur eru handgerðar úr vönduðum efnum þar sem gæði og ending eru í fyrirrúmi. Hönnunin miðast við að varan sé bæði falleg og nýtist vel í þínu daglega lífi.
Sending og skil
Ég legg mikið upp úr því að afgreiða og senda pantanir fljótt og örugglega svo þú fáir vöruna þína sem allra fyrst í hendurnar.
Það skiptir mig öllu máli að þú sért ánægð eða ánægður með viðskiptin. Ef varan hentar ekki eða þú vilt skila henni af einhverjum ástæðum, endilega heyrðu í mér og við finnum í sameiningu góða lausn á því.