Námskeið 2 - Snyrtibudda

Námskeið 2 - Snyrtibudda

7. Nóvember kl. 12-16
12,000 kr
Skip to product information
Námskeið 2 - Snyrtibudda

Námskeið 2 - Snyrtibudda

2 reviews

12,000 kr
Taxes included.
Dagsetning7. Nóvember kl. 12-16

Þetta námskeið verður haldið í Hveragerði og er þrep 2 í þrepaskiptingu námskeiðanna.

Á námskeiðinu saumum við snyrtibuddu frá grunni og förum saman í gegnum allt ferlið.

Á námskeiðinu lærir þú meðal annars að:

  • vinna á þinni eigin saumavél

  • raða saman efnum og vinna með litasamsetningar

  • láta sauma og samskeyti mætast rétt

  • setja rennilás í snyrtibudduna

  • setja fóður í budduna

  • ganga frá saumum með bryddingu

  • klára verkefnið snyrtilega að innan sem utan

Allt efni í budduna er innifalið og verkfæri á borð við skæri, sníðapappír, títuprjóna og sprettunálar eru á staðnum.

Eina sem þú þarft að taka með er saumavélin þín og rennilásafótur. Ég legg áherslu á að nemendur vinni á eigin vél svo þau kynnist henni betur og verði öruggari í að nota hana heima.

Ef þú átt ekki saumavél en langar að koma máttu hafa samband á gestny@gmail.com og við finnum út úr því.

Boðið er upp á kaffi og léttar veitingar.

Aðeins 5 pláss í boði á hvert námskeið

Nánar

Allar vörur eru handgerðar úr vönduðum efnum þar sem gæði og ending eru í fyrirrúmi. Hönnunin miðast við að varan sé bæði falleg og nýtist vel í þínu daglega lífi.

Sending og skil

Ég legg mikið upp úr því að afgreiða og senda pantanir fljótt og örugglega svo þú fáir vöruna þína sem allra fyrst í hendurnar.

Það skiptir mig öllu máli að þú sért ánægð eða ánægður með viðskiptin. Ef varan hentar ekki eða þú vilt skila henni af einhverjum ástæðum, endilega heyrðu í mér og við finnum í sameiningu góða lausn á því.

Skoðaðu fleiri vörur

Alvöru saumaklúbbur

Hárband

Hárband

3,000 kr
  • Hundaólar

    Hundaólar

    5,000 kr

    Námskeið 1 - Saumavélin og grunnþekking

    • 5 stars: 2 (100%)
    • 4 stars: 0 (0%)
    • 3 stars: 0 (0%)
    • 2 stars: 0 (0%)
    • 1 star: 0 (0%)
    Á
    Ásta

    Ég fór á saumanámskeið hjá Gestny og var mjög ánægð! Námskeiðið var bæði skemmtilegt og lærdómsríkt. Ég lærði að setja í rennilás og saumaði mína eigin snyrtibuddu. Mæli svo sannarlega með þessu námskeiði það var virkilega gaman, takk kærlega fyrir mig! 🥰

    H
    Hildur

    Saumanàmskeiðið hjà Gestný var æðislegt. Notalegt umhverfi og góð leiðsögn.
    Nàmskeiðið gaf mér sjàlfstraust til að halda àfram að sauma sjàlf, mæli mikið með:-)