Námskeið 3. Október
Þetta námskeið verður haldið í Hveragerði laugardaginn 3. Október frá 12-16 og er á kynningarverði.
Á námskeiðinu saumum við snyrtibuddu. Við lærum að setja rennilás, fóður og láta saumana mætast rétt.
Allt efni er innifalið og verkfæri svo sem skæri, sníðapappír, títuprjónar og sprettunálar eru á staðnum.
Boðið er upp á kaffi og léttar veitingar.
Eina sem þú þarft að taka með þér er saumavélin og ekki gleyma saumfætinum :)
6 pláss laus
Made with care
Great value
Elegant design
Quality materials
Nánar
Allar vörur eru handgerðar úr vönduðum efnum þar sem gæði og ending eru í fyrirrúmi. Hönnunin miðast við að varan sé bæði falleg og nýtist vel í þínu daglega lífi.
Sending og skil
Ég legg mikið upp úr því að afgreiða og senda pantanir fljótt og örugglega svo þú fáir vöruna þína sem allra fyrst í hendurnar.
Það skiptir mig öllu máli að þú sért ánægð eða ánægður með viðskiptin. Ef varan hentar ekki eða þú vilt skila henni af einhverjum ástæðum, endilega heyrðu í mér og við finnum í sameiningu góða lausn á því.